hjorturfreyr.bloggar.is - þar sem hlutirnir eru hættir að gerast...
Kominn tími á annað?Hjörtur Freyr Sæland
Nú er ég heima á meðan allir aðrir krakkar eru skólanum (þ.e.a.s. sem eru ekki í ML). Er að taka mér pásu frá lærdómnum, en prófin byrja á mánud. í næstu viku. Mjög þægilegar vinnuaðstöður hérna, 18 stiga hiti, sól og algjört logn:). Gæti ekki verið betra.
Ég var að spila á balli á föstudaginn. Þetta var lokað ball fyrir ML-inga og var það alveg frábært. Síðan var ég búinn að spila snemma svo að ég dreif mig bara uppá vist til að fylla á þyrsstan magann. Síðan er ég á ballinu og það farið að nálgast endi og ég er ekki jafn þyrstur lengur, þá er ég kallaður uppá svið að spila eitt lag í viðbót... Það gekk ekki alveg jafn vel og í fyrra skiptið...
Hitti Helgu í gær. Það er alltaf jaf ánægjulegt. Við erum svo spes saman... Meira þarf ekki að seigja held ég.
MyspaceHjörtur Freyr Sæland
Já, ég hef ekki bloggað mikið hérna vegna þess að ég uppgvötaði myspace.com og ég mæli með því að þið kíkið á síðuna http://www.myspace.com/hjortur_freyr .Hún er allavega virkari en þessi síða
meistari MEGAS!!Hjörtur Freyr Sæland
Já, hann hjörtur skellti sér í það verkefni að singja með Kammerkór Biskupstungna og Megasi í Hvalfyrði í gær (dag). Það var troðinn salur og mikil stemming...Jafnvel þó að sumir hafi kanski ekki verið í ástandi til að singja... Jafnvel ekki í ástandi til að standa sjálfir í lappirnar... (nefni engin nöfn/ekkert nafn).
Annars eru bara páskar á morgun og alltof stutt eftir af fríinu okkar. Ég og Ástrún erum búin að gera mjög skemtilegan leik fyrir foreldrnana og þau verða enþá gráhærðari en þau eru núna eftir þennan leik:D. (játið það bara, það eru komin nokkur grá hár þó að þau sjáist ekki mjög mikið). Vona bara að ég fái ekki jafn erviðan leik og við gerðum fyrir þau...
Sæl að sinni, Hjörtur Freyr
Nú er það hreint...Hjörtur Freyr Sæland
Mamma var svo sniðug að skella af stað vorhreingerningum núna í gær, fyrst ég er nú kominn heim og svona...Þetta var æðislega gaman, ég með tuskuna að vopni og ræðst á alla skápa, hillur, píanó og ég veit ekki hvað fleira, sem ég finn.
Já... þetta var æðislega gaman. Svo gaman að við, Ástrún skruppum í íþróttahúsið á meðan hreingerningunum var að ljúka.
Síðan var farið til ömmu og afa og borðað grillmat, svínarif og fleira:P (ég er enþá saddur).
Meira hefur nú ekki gerst síðustu daga...
Hjörtur Freyr
OverHjörtur Freyr Sæland
That´s all folks, já þetta blessaða leikrit hefur runnið sitt skeið og gengið frábærlega.Ég mun aldrei aftur þurfa að vera með drullu framan í mér, málaður eins og stríðsmaður frá e-u afríkulandi, í skyrtu sem er eins og sandpappír viðkomu, virkilega ljót og óþægileg í þokkabót, Buxur sem þrengja svo að miðsvæðinu að ég hefði alveg eins getað verið að singja sópran í þessu leikriti (a.k.a. skærustu kvennmannsröddina).
Já, ég er sáttur við að þetta leikrit sé búið þó að það hafi verið rosalega gaman að útfæra það og vinna á allan hátt. Nú er bara að bíða eftir leiklistarpartyinu:).
Við drekkum ekki neitt í því og förum bara í leiki og kanskii ef við stefnum á að vera óþæg förum við í koddaslag...
Ég ætla ekki að lýsa þessu party hér þar sem ung og óreind eyru, grunnskólanemar og aðrir sem gætu hlotið varanlegan andlegan skaða af geta lesið.
Neinei, við verðum góð, kát og allir verða vinir því það er svo gaman, jeiii
Hjörtur kveður að sinni eftir þetta blogg, sem er hanns fyrsta í allt of langan tíma (hann hefur verið á fullu í því sem stendur efst í þessu bloggi)
Leikrit!!Hjörtur Freyr Sæland
Já það er innan við vika í frumsýningu og allir að farast úr stressi... eða ekki...
Það er aðeins of gaman að vinna í þessu og mæli ég með, eins og svo oft áður að þið kíkið á leikritið Í fyrra sumar, En það verður sýnt um allt Suðurland og líka í Iðnó í Rvk.
Erum að fara að æfa í aratungu í kvöld því það verður frumsýnt þar næstu helgi. Ég er loksins búinn að læra þessi blessuðu lög almennilega. Það bara ætlaði ekki að síast inn í hausinn á mér.
En að öðru, ég var sóktur uppá vatnið í gær af 3 manneskjum, Guðjón, Hanna og Andrea. Síðan var troðið í sig nammi og ís og verið latur... meira er í raun ekki hægt að segja um það.
Er í Reykholti núna að bíða eftir að krakkarnir komi til að byrja þessa blessuðu æfingu.
Hef ekkert meira að segja í bili þannig að ég kveð að sinni, Hjörtur Freyr
Þetta gengur ekki lengur, ég er hættur!!Hjörtur Freyr Sæland
Þessum veikindum hjá mér verður að linna. Í vikunni er ég búinn að fá gubbupest, hita, hósta (hætti aldrey með hann) og slím í lungun (hætti ekki heldur með það).Ég skil ekki hvað er að gerast ég varð ekkert veikur fyrir áramót og ekkert veikur síðustu 3 árin mín í grunnskóla og svo er ég að verða veikur í 4. skiptið núna bara eftir áramót
. Ég mundi eftir skólatöskunni núna þannig að ég missi ekki mikið nám niður og ég vona að Kolka hafi tekið við vinnubókinni sem ég átti að skila í síðustu viku...Ef e-r býr yfir super natural powers sem lækna mig á no time þá er síminn minn 866-1811 og sá hinn sami má endilega hringja í mig og aflétta þessari bölvun sem hefur hvílt yfir mér síðasta mánuðinn.
Þetta er nóg í bili, Hjörtur Freyr
VEI!!Hjörtur Freyr Sæland
Nú fer maður að fara að komast á Vatnið, loksins. Já, hann er farinn úr rúminu og ætlar að fara að snúa sér að...námi:S.
Það vill svo skemtilega til að ég bjóst við því að vera einn dag heima en ekki eina viku og tók ekkert skóladót með mér heim. Svo að ég er viku á eftir í öllum fögum og veit ekkert hvað ég á að gera af mér núna. Strákar, smá hjálp kanski?? glósur eru vel þegnar.
Annars líður mér frábærlega núna og hlakka til að geta farið að HREYFA MIG!! Það verður æðislegt að komast í ræktina og boltan aftur. Liggur við að ég hafi orðið þunglindur hérna heima. Engin hreyfing og ekki gítar til að plugga við magnara (hafði þó gamla kassagítarinn). Þetta hefur verið vika vonleysis og aumingjaskaps og samt ekkert kók:O. Ég hef verið virkilega veikur... En nóg af því
Get ekki beðið eftir að komast á Laugarvatn til að byrja að æfa þetta blessaða leikrit og...
læra:S
kv. Hjörtur
VeikindavesenHjörtur Freyr Sæland
Nú heldur maður sko bolnum á sér næstu dagana (hint til ákveðna manneskja) því ég er með hálfgerða lúngnabólgu. Það þýðir að ég má ekki finna fyrir kulda og varla gera neitt:S.Sit hérna heima í eymd og volæði (rosa emo e-ð:D) og sakna ML alveg rosa mikið.
Verð að kíkja á vatnið á eftir... Þá get ég loksins hlaðið síman minn sem er b.t.w. búinn að vera batteryslaus alla vikuna.
Annas bara allt gott að frétta fyrir utna þetta.
Afmæli!!!Hjörtur Freyr Sæland
já bróðir minn á afmæli í næstu viku (21. feb.) og afmælið var haldið í dag...
Það var fjör.. Þeir frændur, Gústi, Eiríkur og Helgi eru svakalegir saman. Það var mikið grátið/hlegið/hlaupið/öskrað and so on and so on. Ótrúlegt að maður hafi orku í að vera að blogga núna. Ég hef ekki neitt að segja svosem annað um þetta afmæli.
Nú, einnig vil ég mynna á það að ML leikritið verður GEÐVEIKT!!! og hvet ég alla sem geta mætt á það að gera það
.
